fimmtudagur, 7. febrúar 2008

Boston- Kaupmannahafnar- og fl. Maraþonfarar.

Hver ætlar að taka við Hlaupabloggkyndlinum af mér og skrifa hér á síðuna? Ég mæli með að menn tilnefni einhvern hér í commenntum:

Hlaupasjúklingar í Sólaríkinu

Líður að hlaupi í Tampa. Fórum á æfingu með Bradenton-running club á þriðjudag. Mjög gaman. Hlóp 6 mílur á 5:15 tempói eða maraþon-draumahraðanum. Svo aftur í gærmorgunn recovery 6 mílur á mjöööög rólegu, þreytt þá. Hlakka til í Gasparilla Ég veit að Siggi ætlar 5km þar, veit ekki hvort Inga ætlar að hlaupa. Ég ætla 15km – skal hlaupa eins hratt og ég get (eins og maður geri það ekki alltaf). Ég veit ekki hvað Ívar ætlar að gera- Hann er strax farinn að pæla í hvort hann getur ekki fundið einhvern til að fylgja ;)

Verð að segja að lokum að Brandur ásamt Tryggva + Kjartani hafa valdið heilabrotum hér og mörgum hlátursköstum.

Kveðja frá Sólarríkinu - á sundlaugarbakkanum með tölvuna í ró meðan ástmaðurinn hleypur eins og vitlaus maður um götur bæjarins.