fimmtudagur, 7. ágúst 2008

Hlaupaferðalög

Ég var að skoða myndir frá ferðalögum sumarsins. Þau hafa nefnilega verið mjög lituð af hlaupum í sumar. Við gistum 2 nætur í Þórsmörk (Sævar segir Goðalandi) þegar við hlupum yfir Fimmvörðuhálsinn (blogg 22. júní).



Við gistum 3 nætur á Þingeyri í sambandi við Vesturgötuhlaupið (sjá Myndir 19. júlí).


Nokkrum dögum síðar komum við í Ásbyrgi og gistum þar í 3 nætur. Á meðan tókum við þátt í Jökulsárhlaupinu (ég tók myndir í hlaupinu 2006, sjá Myndir).

Það er nefnilega ýmislegt sem hlauparar gera saman annað en að hlaupa, til dæmis að ferðast saman. Borða saman viðhafnarkvöldverði undir beru lofti.



Í Ásbyrgi var raðað saman borðum í eitt stórt langborð og 40 manns tóku þátt í borðhaldinu.




Rifjuðu upp afrek dagsins.



Áttu saman rosalega notalega kvöldstund.




Við ættum að gera meira af þessu - blanda saman hlaupum og öðrum skemmtunum.

2 Ummæli:

Blogger Jóhanna sagði...

Gaman að myndunum. Þetta hlaupa-fjölskylduferðalag gaf þeim fyrri ekki eftir. Pétur Franzson lagði áherslu á það fyri 100 árum og til dagsins í gær að taka fjölskylduna með í hlaupin og ferðalögin. Eftir standa ótal mörg ógleymanleg ferðalög. Við sýnum að við munum halda þessum sið. Takk fyrir samveruna.

8. ágúst 2008 kl. 23:09  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Flottar myndir af flottum hóp. Er nú þegar farin að skipuleggja í huganum ferð yfir Fimmvörðuhálsinn næsta sumar. En þangað til eigum við eflaust eftir að fara í eitthver skemmtileg ferðalög í millitíðinni.
Kv
Bogga

9. ágúst 2008 kl. 19:38  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim